Viðskipti innlent

Konur í meirihluta í stjórn SVÞ

Á aðalfundi SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu nýlega  var Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff endurkjörin formaður stjórnar. Þá voru þeir sem kjörnir voru í stjórn að meirihluta konur.

Aðrir í stjórn voru kjörnir: Finnur Árnason, varaformaður, forstjóri Haga, Guðmundur Halldór Jónsson, aðstoðarforstjóri Norvikur, Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Kokku, Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Eimskipafélags Íslands, Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já Upplýsingaveitna.

Í tilkynningu segir að með þessu stjórnarkjöri urðu þau tímamót að þarna urðu konur í fyrsta sinn í meirihluta í stjórn aðildarfélags Samtaka atvinnulífsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×