Umfangsmiklar breytingar á skipulagi Nýherja 10. mars 2011 10:37
Stjórn Nýherja hf. hefur ákveðið að innleiða nýtt skipulag fyrir Nýherja og dótturfélög á Íslandi. Megin breytingarnar felast í sameiningu félaga í tengdri starfsemi og uppbyggingu stærri eininga sem veita þjónustu á sviði upplýsingatækni. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að skipulagsbreytingarnar felast meðal annars í eftirfarandi: Rekstrar- og hýsingarfélagið Skyggnir ehf. og fyrirtækið Sense ehf., sem sérhæfir sig í hljóð- og myndlausnum auk Viðju ehf. verða sameinuð móðurfélaginu Nýherja hf. Skyggnir og Sense verða áfram vörumerki innan Nýherja hf. Eftir sameininguna verða starfsmenn Nýherja hf. um 270. Applicon ehf. og Vigor ehf., sem sérhæfa sig í lausnum á sviði viðskiptahugbúnaðar verða sameinuð undir nafni Applicon ehf. „Vigor lausnir“ verða þróaðar áfram og hluti af lausnaframboði Applicon ehf. Starfsmenn Applicon ehf. verða um 50 eftir sameininguna. TM Software ehf., sem starfar að hugbúnaðarþróun og EMR heilbrigðislausnir ehf., sem á og þróar sjúkraskrárkerfi og lausnir á heilbrigðissviði, verða sameinuð undir merkjum TM Software ehf. Sjúkraskrárkerfi EMR, svo sem Saga, Hekla og fleiri kerfi verða hluti af lausnaframboði TM Software ehf. Starfsmenn TM Software ehf. verða um 65 eftir sameininguna. Breytingarnar taka gildi 1. apríl næstkomandi og verða kynntar viðskiptavinum félagsins nánar á næstunni. Heildarfjöldi starfsmanna Nýherjasamstæðunnar hérlendis og erlendis eru um 540. Markmið þeirra breytinga, sem nú verða innleiddar hjá Nýherjasamstæðunni er að efla samkeppnisstyrk og sérstöðu félagsins á innlendum markaði og styrkja þjónustuframboð til viðskiptavina þess. „Rekstrarafkoma Nýherja hf. er nú aftur orðin viðunandi eftir efnahagssviptingar liðinna missera. Með nýju skipulagi, færri en sterkari einingum ætlum við okkur að ná auknum slagkrafti og víðtækari þjónustu á markaðnum og vera áfram í forystu til að mæta síbreytilegum þörfum okkar viðskiptavina fyrir lausnir á sviði upplýsingatækni,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Sjá meira