Aukinn áhugi erlendra aðila á ríkisbréfum 10. mars 2011 11:22
Svo virðist sem áhugi erlendra aðila á ríkisbréfum hafi eitthvað glæðst í febrúar síðastliðnum frá fyrri mánuði. Samkvæmt Markaðsupplýsingum sem Lánamál sendu frá sér í gær voru erlendir aðilar stórtækir í seinna útboði mánaðarins þar sem í boði var óverðtryggði flokkurinn RIKB12. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi áhugi erlendra aðila á flokknum sé í takti við það sem við mátti búast enda er þetta stysti flokkur sem Lánamál áforma að stækka á árinu og hafa erlendir aðilar hingað til sótt mun meira í styttri flokka en þá lengri. Í útboðinu keyptu þeir bréf í RIKB12 fyrir um 5,3 milljarða kr. að nafnverði, eða sem nemur 60% af seldu magni. Þeir eru jafnframt stærstu eigendur bréfa í flokknum en í janúarlok áttu þeir um 56% útistandandi bréfa í flokknum. Erlendir aðilar voru einnig fyrirferðarmiklir í víxlaútboðum febrúarmánaðar þar sem gefnir voru út 3ja og 6 mánaða ríkisvíxlar. Keyptu þeir bréf í 3ja mánaða flokknum fyrir 6,7 milljarða kr. að nafnverði í flokknum en alls var tilboðum tekið fyrir 9,1 milljarð kr. Keyptu þeir þar með um 74% af seldu magni í styttri víxlaflokknum. Í 6 mánaða flokknum keyptu þeir bréf fyrir 3,5 milljarða kr. að nafnvirði, eða sem nemur um 56% af seldu magni en alls seldu Lánamál bréf í flokknum fyrir 6,2 milljarða kr. Má því leiða að því líkur að eignarhlutdeild þeirra hafi aukist á ný í víxlum með útboðum febrúarmánaðar en í lok janúar áttu þeir helming útistandandi víxla.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Sjá meira