Viðskipti innlent

Laun hækkuðu um 0,7% milli ársfjórðunga

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,7% hærri á fjórða ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,8% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,5% að meðaltali.

Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,0%, þar af 6,4% á almennum vinnumarkaði og um 1,9% hjá opinberum starfsmönnum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun sérfræðinga mest eða um 1,1% en laun iðnaðarmanna og verkafólks hækkuðu að meðaltali um 0,6% á sama tímabili. Frá fyrra ári hækkuðu laun sérfræðinga einnig mest eða um 7,3% en laun iðnaðarmanna hækkuðu um 5,1% á sama tímabili.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 1,3% en á sama tíma lækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð  um 0,7%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í samgöngum og flutningum um 8,1% en minnst í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð um 3,4%.
Fleiri fréttir

Sjá meira


×