Viðskipti innlent

Atvinnuleysi eykst, var 8,6% í febrúar

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2011 var 8,6% en að meðaltali 13.772 manns voru atvinnulausir í febrúar og eykst atvinnuleysi um 0,1 prósentustig frá janúar, eða um 314 manns að meðaltali.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að körlum á atvinnuleysisskrá fjölgar um 187 eða um 0,2 prósentustig að meðaltali en konum um 127 að meðaltali eða um 0,1 prósentustig.

Mest fjölgar atvinnulausum hlutfallslega á Vestfjörðum en þar fjölgar um 26 manns á atvinnuleysisskrá að meðaltali. Atvinnuleysið er 9,2% á höfuðborgarsvæðinu en 7,7% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 14,5%, en minnst á Norðurlandi vestra 4,1 %. Atvinnuleysið er 9,3% meðal karla og 7,8% meðal kvenna.

Alls voru 14.873 atvinnulausir í lok febrúar. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 12.456, af þeim voru 3.992 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl, á kynningarfundi og í vinnumiðlun.

Fjölgun atvinnulausra í lok febrúarmánaðar frá lokum janúar nam 185 en 82 fleiri karlar voru á skrá og 103 fleiri konur m.v. janúarlok. Á landsbyggðinni fækkar um 9 en fjölgar um 194 á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.662 og fjölgar um 457 frá lokum janúar og er um 52% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok febrúar. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar úr 4.794 í lok janúar í 4.820 í lok febrúar.

Alls voru 2.722 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok febrúar en 2.670 í lok janúa eða um 18% allra atvinnulausra í febrúar og fjölgar um 52 frá því í janúar. Í febrúar 2010 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 3.104.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×