Viðskipti innlent

Kreditkortavelta eykst milli ára í febrúar

Heildarvelta kreditkorta í febrúar 2011 var 25,7 milljarðar kr. og er þetta 6,3% aukning miðað við febrúar í fyrra en 9,7% samdráttur miðað við janúar síðastliðinn.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að heildarvelta debetkorta í febrúar 2011 var 26,6 milljarðar kr. og er þetta 2,1% samdráttur miðað við febrúar í fyrra en 3,6% aukning miðað við janúar síðastliðinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×