Spáir óbreyttum stýrivöxtum vegna Icesave óvissu 15. mars 2011 10:48
IFS greining gerir ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum um sinn vegna óvissunnar sem umlykur þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave og áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna en til stendur að birta hana 25. mars. Ákvörðun um stýrivexti verður birt á morgun, miðvikudag. Í tilkynningu segir að fyrri bráðabirgðaspá IFS hljómaði uppá 25 punkta lækkun stýrivaxta en vegna áðurnefndrar óvissu telur greiningin að þeir haldist óbreyttir. Gangi spáin eftir og Seðlabankinn haldi öllum vöxtum óbreyttum verða vextir á viðskiptareikningum lánastofnanna 3,25% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,0%, veðlánavextir (7 daga) eru 4,25%, daglánavextir 5,25% og vextir af bindiskyldum innstæðum 3,25%. „Yfirleitt hefur verið fylgni á milli verðbólgu og þenslu í vestrænum hagkerfum og stýrivaxtaákvarðanir þess vegna ekki vafist mikið fyrir seðlabönkum. Nú er hins vegar efnahagslegur slaki í flestum vestrænum löndum og óvenju lítið um fjárfestingar á sama tíma og verðbólga fer hækkandi," segir í tilkynningunni. „Verðbólgan nú er augljóslega ekki vegna þenslu og eftirspurnarþrýstings í vestrænum hagkerfum heldur vegna uppskerubrests, upplausnarástands í miðausturlöndum og eftirspurnar í nýmarkaðsríkjum. Samkvæmt orðum yfirhagfræðings Seðlabanka Íslands fylgja stýrivextir ekki verðlagssveiflum nema þær fari að hafa áhrif á verðbólguvæntingar eða leiða til launahækkana. Gengi krónunnar hefur lækkað nokkuð síðan um áramótin eða um 3,8%. Einnig hafa hrávörur hækkað mikið í verði og þá sérstaklega olía. Kjarasamningar nokkurra stórra stétta eru lausir og munu verðlagshækkanir og fréttir af launahækkunum þeirra launahæstu ekki draga úr kröfum þeirra. Þessir þættir geta komið í veg fyrir lægri vexti en ella sem kæmi afar illa við fjárfestingu í landinu sem þegar er í lágmarki."
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira