Breskur dómstóll hafnaði frávísunarkröfu Kaupþings 17. mars 2011 05:45
Undirdómur í Englandi hefur hafnað frávísunarkröfum Kaupþings í tveimur málum sem höfðuð voru gegn Kaupþingi í London árið 2010. Málin voru höfðuð af Rawlinson & Hunter Trustees sem stýrir sjóðunum Tchenguiz Discretionary Trust (TDT) og Tchenguiz Family Trust (TFT). Fjallað er um málið á vefsíðu skilanefndar Kaupþings. Þar segir að úrskurður dómsins í dag varðar kröfu Kaupþings um frávísun dómsmála sem höfðuð voru of TDT og TFT fyrir dómstólum í Englandi. Kröfur sem hafðar eru uppi í málunum eru þegar til meðferðar fyrir dómi á Íslandi. Kröfum Kaupþings um frávísun var hafnað en Kaupþing hyggst sækja um leyfi til að áfrýja niðurstöðunni. Einu áhrif dómsniðurstöðunnar eru að málaferli um efnishlið krafna Rawlinson & Hunter geta hafist í Englandi og að enski dómurinn mun ekki bíða niðurstöðu sambærilegra málaferla sem þegar eru hafin á Íslandi. Dómurinn tekur ekki á efnishlið krafna Rawlinson & Hunter. Ef áfrýjun Kaupþings gengur eftir munu málaferli um efnishlið krafnanna fyrir enskum dómstólum falla niður. Kröfur Rawlinson & Hunter í þessum málum endurspegla að stórum hluta sambærilegar kröfur sem nú þegar eru til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeim kröfum var hafnað af slitastjórn Kaupþings í mars 2010. Samkvæmt íslenskum gjaldþrotalögum og lögum um fjármálafyrirtæki skal ágreiningur um réttmæti og upphæð krafna gegn íslensku fjármálafyrirtæki í slitameðferð leiddur til lykta af íslenskum dómstólum. Þann 10. febrúar 2011 úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að málarekstri á Íslandi um kröfurnar skyldi framhaldið án tillits til málaferla í Englandi. Gangi dómur í Englandi um efnishlið krafna Rawlinson & Hunter þá hefur slíkur dómur ekki bein áhrif á Íslandi né verður bindandi fyrir íslenska dómstóla. Íslenskir dómstólar munu kveða upp úrskurð óháð niðurstöðu annarra dómstóla um hvort kröfur á hendur Kaupþingi séu réttmætar eða ekki. „Dómstóllinn í Englandi ályktaði ekki um réttmæti krafna Rawlinson & Hunter. Í raun er þetta einungis úrskurður um formhlið málsins. Efnislega eru kröfur Rawlinson & Hunter afar veikar og þær eru nú þegar til meðferðar fyrir íslenskum dómstólum,“ segir í yfirlýsingu frá Weil, Gotshal & Manges LLP, lögfræðilegum ráðgjafa Kaupþings
Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Iðnaðarmaður ársins: Jón Gestur Samstarf Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Þurfum að fara varlega í að halda að við séum best Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira