Arion banki afskrifaði tæpa 22 milljarða í 1998 ehf. 17. mars 2011 11:02
Arion banki afskrifaði 21,6 milljarða króna af skuldum 1998 ehf., móðurfélagi Haga, um síðustu áramót. 1998 ehf. skuldaði bankanum 55 milljarða króna samkvæmt síðasta birta ársreikningi. Því var 33,4 milljarða króna skuld enn inni í félaginu. Fjallað er um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að eina eign 1998 um síðustu áramót var 95,7% eignarhlutur í smásölurisanum Högum. Hann var metinn á 12 milljarða króna. Arion seldi síðan 34% hlut í Högum í febrúar á 4.140 milljónir króna til Búvalla slhf., undir forystu Hallbjörns Karlssonar og Árna Haukssonar. Til viðbótar samdi félagið um forkaupsrétt á 10% hlut í Högum á hærra verði. Stefnt er að því að Hagar verði skráðir í kauphöll í haust. Því ætti að liggja fyrir hversu mikið til viðbótar Arion þarf að afskrifa vegna 1998 í lok þessa árs.Á hluthafafundi sem haldinn var 1. júlí 2010 var samþykkt að hækka hlutafé 1998 um 21,6 milljarða króna. Eini hluthafi félagsins, Arion banki, skráði sig fyrir allri hækkuninni. Í skýrslu stjórnar 1998 ehf. segir að „heimilt verður að greiða fyrir hið nýja hlutafé með umbreytingu krafna Arion banka hf. á hendur 1998 ehf [...] Stjórn 1998 ehf. hefur lagt mat á hvort skuldir þær sem um ræðir séu til staðar. Þá liggur fyrir vilji Arion banka hf. á umbreytingu skulda í hlutafé“. Því breytti Arion 21,6 milljörðum króna af kröfum sínum á 1998 í hlutafé þennan dag. Þann 31. desember 2010 var síðan haldinn hluthafafundur í 1998, að því er segir í Viðskiptablaðinu.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Fleiri fréttir Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sjá meira