Reiknistofa bankanna hlaut upplýsingatækniverðlaunin 18. mars 2011 09:59
Reiknistofa bankanna hlýtur upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands (Ský) árið 2011. Það var forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhenti verðlaunin í morgun á UT messunni sem nú stendur yfir og mun ljúka með sýningu fyrir almenning í húsnæði HR í Öskjuhlíð á morgun. Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna (RB) tók við verðlaununum. Í greinargerð valnefndar verðlaunanna kemur fram að Reiknistofa bankanna hafi í 38 ár verið leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið hafi séð Íslendingum fyrir greiðsluþjónustu sem hefur gert viðskipti fyrirtækja og einstaklinga hagkvæm, skjót og örugg. Sem dæmi um mikilvægi fyrirtækisins fyrir Ísland er nefnt að grunnkerfi RB og starfsfólk fyrirtækisins hafi átt stóran þátt í að tryggja landsmönnum eðlilega greiðslumiðlun haustið 2008 þegar íslenska bankakerfið fór á hliðina. Í tilkynningu segir að Reiknistofa bankanna hafi svo sannarlega lifað tímana tvenna í upplýsingatækni. Meðal stærstu verkefna sem fyrirtækið hefur sinnt má nefna myntbreytinguna 1981, tölvutengingu allra banka, sparisjóða og afgreiðslustaða frá 1986, breytingu tölvukerfa vegna 2000-vandans, innleiðingu innheimtuþjónustu sem gerir kleift að greiða viðskiptakröfur beint í netbanka og innleiðingu birtingarkerfis sem gerir dreifingu rafrænna viðskiptaskjala til almennings auðvelda. Reiknistofa bankanna rekur eitt flóknasta tölvukerfi landsins, en um það fara t.d. allar greiðslur inn og út af bankareikningum landsmanna. RB hefur að mati valnefndar leikið lykilhlutverk í innleiðingu debetkorta og útrýmingu tékkaviðskipta. Að auki hefur fyrirtækið stuðlað að því að verulega hefur dregið úr pappírsnotkun á landinu með því að gera rafræna birtingu á greiðsluseðlum, yfirlitum, lykilorðum, launaseðlum og öðrum viðskiptaskjölum mögulega. „RB er svo sannarlega vel að þessum verðlaunum komið, enda starfað ötullega að þróun og nýtingu upplýsingatækni á Íslandi í hartnær fjóra áratugi. Fyrirtækið er jafnan ekki ofarlega í hugum almennings, en starfsemi þess er engu að síður ómissandi þáttur í lífi okkar allra,“ segir Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský. Þetta er í annað sinn sem Upplýsingatækniverðlaun Ský eru afhent, en á síðasta ári hlaut Friðrik Skúlason verðlaunin. Í valnefnd verðlaunanna voru Guðbjörg Sigurðardóttir og Sigurjón Pétursson, heiðursfélagar Ský, Friðrik Skúlason, UT-verðlaunahafi Ský 2010, Ebba Þóra Hvannberg frá HÍ, Bjarni Már Gylfason frá Samtökum iðnaðarins, Eggert Claessen frá Frumtaki, Hjörtur Grétarsson úr stjórn Ský og Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský. Verðlaunagripurinn er glerlistaverk eftir listamanninn Ingu Elínu.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Fleiri fréttir Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sjá meira