230 milljarðar frá ríkinu í endurreisn bankakerfisins 1. mars 2011 12:30
Kostnaður ríkisins við að endurreisa fjármálafyrirtæki og tryggingafélög á síðustu tveimur árum stefnir í að fara í 230 milljarða króna. Þá eru ekki talið með 192 milljarða króna tjón vegna Seðlabankans. Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fékk þau svör frá fjármálaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, á Alþingi í gær, við fyrirspurn um kostnað ríkisins vegna fjármálafyrirtækjanna, að stærsta einstaka fjárframlagið væri fjármögnun Landsbankans upp á 122 milljarða króna, og að fjármögnun stóru bankanna þriggja með víkjandi lánum losaði 200 milljarða. Áætlun um sparisjóðina gengi út á um 20 milljarða en aðrar tölur væru lægri. Þar munaði mestu um tryggingafélagið Sjóvá upp á 11,4 milljarða. Steingrímur sagði að menn væru enn langt undir þeirri upphaflegu áætlun sem gerði ráð fyrir að um 385 milljarða króna gætu farið í það hjá ríkinu að endurfjármagna bankakerfið. Steingrímur tók þó fram að tjón vegna Seðlabankans væri ekki inni í þessum tölum, "..fórnarkostnaður Seðlabankans vegna skuldabréfaviðskiptanna," sem hann sagði að yrði væntanlega stærsti reikningurinn. Þar hafi 192 milljarðar króna verið afskrifaðar í ríkisreikningi árið 2008. "Og það er alveg ljóst að þá peningana fáum við ekki til baka." Varðandi viðskiptabankana og sparisjóðina sagði Steingrímur að heildartalan vegna þeirra væri einhverjum tugum milljarða fyrir ofan 200 milljarðana. "En að langstærstu leyti standa þar eignir á móti og ég tel ágætar líkur á að þær eignir skili sér að fullu," sagði fjármálaráðherra.
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Sjá meira