Viðskipti innlent

ASÍ: Vörukarfan hækkaði mest í Hagkaupum og Bónus

Miklar hækkanir hafa orðið frá því í haust á grænmeti, ávöxtum, mjólkurvörum, ostum og kjötvörum í vörukörfu ASÍ, að því er fram kemur í nýrri mælingu verðlagseftirlitsins sem gerð var nú í febrúar. Við samanburð á mælingu verðlagseftirlitsins frá því í nóvember 2010 og nú í febrúar, hækkar vörukarfan í öllum verslunum nema 11/11 og Samkaupum-Úrvali, en mesta hækkunin er í Hagkaupum um 9,1% og Bónus um 5,1%. Kostur neitaði að taka þátt í mælingunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ um málið. Þar segir að í lágvöruverðverslununum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Bónus um 5,1% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (16,4%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (7%) og kjötvörum (5,8%).

Í Krónunni hækkaði vörukarfan um 3,5% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (16%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (6,5%) og kjötvörum (6,1%). Í Nettó hækkaði vörukarfan um 1,1%.

Í stórmörkuðum og klukkubúðum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Hagkaupum um 9,1%, sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á kjötvörum (29,8%), grænmeti og ávöxtum (14,6%) og mjólkurvörum, ostum og eggjum (4,6%).

Í Nóatúni hækkaði vörukarfan um 4,5% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (12,7%), kjötvörum (5,2%) og sykri, súkkulaði, sælgæti og fl.(11,2%).

Í 10-11 hækkaði vörukarfan um 4,4% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á kjötvörum (5,2%), grænmeti og ávöxtum (14,1%) og mjólkurvörum, ostum og eggjum (8,8%).

Í Samkaupum-Strax hækkaði vörukarfan um 2,3%. Verð vörukörfunnar hefur lækkað hjá 11/11 um (-1,2%) vegna lækkunar á sætindum um (-6,7%) og snyrtivörum um (-7,4%). Í Samkaupum-Úrvali lækkaði vörukarfan um (-0,6%) vegna lækkunar á sætindum um (-13,3%).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×