Um 17.000 lán verða endurútreiknuð hjá Íslandsbanka 1. mars 2011 14:44
Íslandsbanki hefur á síðustu vikum unnið að endurútreikningi húsnæðis- og bílalána, kaupleigusamninga og einkaleigusamninga einstaklinga í erlendum myntum. Þegar yfir lýkur mun bankinn hafa endurútreiknað um 17.000 lán. Í tilkynningu segir að í þessari viku stefnir bankinn að því að ljúka við endurútreikning á nær tíu þúsund bílalánum af þeim tæplega tólf þúsund lánum sem verða endurreiknuð. Gert er ráð fyrir að síðasti áfangi endurútreiknings bílalána, samtals um 2000 lán, verði birtur viðskiptavinum á næstum fjórum vikum. Nú þegar hefur Íslandsbanki greitt út um einn og hálfan milljarð króna til viðskiptavina vegna endurútreiknings. Íslandsbanki hefur samhliða þessu hafið endurútreikning á húsnæðislánum og gert ítarlega úttekt á þeim lánasamningum sem hafa verið algengastir undanfarin ár. Bankinn hefur ákveðið að ganga lengra en breytingar á lögum sem samþykktar voru af Alþingi í desember síðastliðnum segja til um. Það þýðir að öll erlend lán með veði í íbúðarhúsnæði verða endurreiknuð hjá Íslandsbanka, burt séð frá því hvort um íbúðarhúsnæði til eigin nota er að ræða eða ekki. Þá býður Íslandsbanki einnig upp á höfuðstólslækkun og fleiri valkosti um vaxtakjör en lögin gera ráð fyrir, m.a. tímabundinn vaxtaafslátt frá óverðtryggðum húsnæðislánakjörum. Breytilegir óverðtryggðir vextir Íslandsbanka með tímabundnum afsláttarkjörum eru nú 3,75%. Í heild verða um 5000 húsnæðislán endurreiknuð. Nú hafa um eitt þúsund lán verið birt í heimabönkum viðskiptavina okkar. Stefnt er að því að endurútreikningur allra lána sem teljast til húsnæðislána samkvæmt lögunum verður birtur í heimabönkum viðskiptavina fyrir lok mánaðarins. Þegar yfirlýkur mun Íslandsbanki hafa endurreiknað samtals um 17.000 lánasamninga viðskiptavina með húsnæðis- og bílalán, kaupleigusamninga og einkaleigusamninga í erlendum myntum. Þar til endurútreikningar liggja fyrir stendur viðskiptavinum með húsnæðislán áfram til boða að greiða mánaðarlega 5.000 kr. af hverri upphaflegri milljón lánsins. Allar greiðslur verða teknar með inn í endurútreikning lánsins.
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Sjá meira