Hagnaður RARIK 1,8 milljarðar í fyrra 2. mars 2011 07:47
Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði á árinu 2010 var 1.787 milljónir króna sem um 3% aukning frá fyrra ári og í samræmi við áætlanir. Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. Þar segir að vegna styrkingar krónunnar var hagnaður ársins mun meiri en 2009 sem rekja má til verulegra breytinga á fjármagnsliðum, en niðurstaða fjármagnsliða var jákvæð um 56 milljónir króna, þrátt fyrir að vaxtaberandi skuldir félagsins hafi verið 15,7 milljarðar króna í árslok 2010. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 833 milljónir kr. Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11% frá árinu 2009 og voru 9,7 milljarðar króna, en rekstrargjöld hækkuðu um rúm 13% og voru 7,9 milljarðar króna. Fjármagnsgjöld á árinu 2010 voru eins og áður segir jákvæð um 56 milljónir króna sem má að stórum hluta rekja til styrkingar krónunnar, bæði hvað varðar erlenda lánasamninga og afleiðusamninga, en einnig vegna lágra vaxta á erlendum lánum. Í áætlunum ársins var ekki gert ráð fyrir breytingu á gengi krónunnar. Handbært fé frá rekstri var 2 milljarðar króna. Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 802 milljónir króna. Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok 37 milljarðar króna, heildarskuldir námu 18,7 milljörðum króna, eigið fé var 18,3 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall því 49,5%. Í tilkynningunni segir að horfur í rekstri RARIK á árinu 2011 séu góðar, en afkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar af almennri þróun efnahagsmála, verðlagsþróun og gengi krónunnar. Áætlanir ársins 2011 gera ráð fyrir hagnaði af rekstri félagsins. Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð um áramótin, en skv. áætlunum er ekki gert ráð fyrir hækkunum umfram almennar verðlagsbreytingar. Fyrirtækið hefur þó ekki nýtt sér að fullu tekjuheimildir í raforkulögum við gjaldskrárgerð. Á það einkum við um gjaldskrá í dreifbýli. Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2011.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Sjá meira