Íslenskt hátæknifyrirtæki starfar í Kísildalnum 4. mars 2011 07:47
Um mánaðarmótin opnaði íslenska hátækni sprotafyrirtækið Clara sölu- og markaðsskrifstofu í Kísildalnum (Silicon Valley) í Kaliforniu. Clara mun vera eina íslenska fyrirtækið sem er staðsett í þessari mekka hátækni- og sprotaiðnaðar. Clara í sama húsnæði og Google var í þegar það var ný stofnað og með fjóra starfsmenn og hýsti fyrirtækið þangað til það varð orðið 50 manna fyrirtæki. Gunnar Hólmsteinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að til að byrja með verði þar staðsettir tveir starfsmenn en fljótlega verði hugað að stærri einingu með fleiri starfsmönnum sem eigi að sjá um allan Bandaríkjamarkað. Clara hefur undanfarin þrjú ár verið að þróa Clara Insight sem er öflugt textagreiningartól sem notar tungumálaverkfræði og gervigreind til að fara yfir gríðar mikið magn af texta og draga hann saman á auðskilin hátt á nokkrum sekundum. Þannig þurfa erlend stórfyrirtæki með fjölmenn samfélög á netinu ekki að lesa í gegnum allar þær umræður sem eiga sér stað, heldur geta fengið samantektir á umræðunni og viðvaranir þegar viðkvæm málefni koma upp og þannig forgangsraðað hvaða umræðuefni þurfi að sinna fyrst til að verja verðmæta ímynd sína. Fyrst um sinn mun Clara herja á tölvuleikjamarkaðinn sem er vaxandi markaður á heimsvísu og veltur meira en tónlistar- og kvikmyndamarkaðurinn til samans. Clara hefur einnig gefið út vöru fyrir íslenskan markað sem ber nafnið Vaktarinn og skoðar þá umtal um íslensk fyrirtæki á netinu. Á því rúma ári sem Vaktarinn hefur verið á markaðnum hafa flest stærstu fyrirtæki landsins nýtt sér þjónustuna og það sem af er ári, hefur Vaktarinn verið að bæta við einu fyrirtæki á dag í viðskipti. Hvað Kísildalinn varðar, þá bendir Gunnar á að öll hin Norðurlöndin hafa stuðningsskrifstofur sem veita ungum og efnilegum fyrirtækjum stuðning við flutning til Kísildals, enda margbúið að sýna fram á að fyrirtæki þaðan eiga mun auðveldara með að sækja fjármagn til að stækka og mynda þau viðskiptatengsl sem eru nauðsynleg eru til að blómstra. Enda engin tilviljun að öll helstu tæknifyrirtækin í dag eins og Google, Facebook, Apple eru staðsett í Kísildalnum. “Ég er þó ekki að segja að íslenska ríkið geri ekkert fyrir efnileg og vaxandi sprotafyrirtæki, en stuðningur er oft miðaður við þessar týpísku greinar, sjávarútveg og ferðamannaiðnað. Við nýttum okkur nýlega Útstím þjónustu Íslandsstofu vegna kynningar á Clara kerfinu í London, sem við hefðum aldrei farið út í nema vegna aðstoðar frá hinu opinbera. Sú kynning tókst frábærlega og skilar sér í að við ætlum okkur að opna þar skrifstofu fljótlega,” segir Gunnar.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira