Viðskipti innlent

Fasteignakaupum fjölgaði um 50% milli ára í febrúar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar s.l. var 280. Þetta er yfir 50% fjölgun samninga miðað við febrúar fyrir ári síðan.

Fjallað er um málið á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að heildarvelta nam 7,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 28,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 4,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,8 milljörðum króna.

Þegar febrúar s.l. er borinn saman við janúar fjölgar kaupsamningum um 27,9% og velta eykst um 25,5%. Í janúar var þinglýst 219 kaupsamningum, velta nam 6,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 28,8 milljónir króna.

Þegar febrúar s.l. er borinn saman við febrúar 2010 fjölgar kaupsamningum um 50,5% og velta eykst um 36,6%. Í febrúar 2010 var þinglýst 186 kaupsamningum, velta nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 31,1 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 25 í febrúar s.l. eða 9,6% af öllum samningum. Í janúar voru makaskiptasamningar 26 eða 12,4% af öllum samningum. Í febrúar 2010 voru makaskiptasamningar  41 eða 23,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×