Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um 7,8 milljarða í janúar

Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 42,3 milljarða króna og inn fyrir 34,5 milljarða króna. Vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um tæpa 7,8 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að verðmæti vöruútflutnings var 21,8% meira en í janúar 2010 og verðmæti vöruinnflutnings var 17,0% meira á föstu gengi frá sama tíma. Í janúar 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 5,2 milljarða króna á sama gengi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×