Viðskipti innlent

Lítilsháttar aukning á kortaveltu milli ára

Kreditkortavelta heimila dróst saman um 2,1% í janúar í ár miðað við janúar í fyrra. Debetkortavelta jókst um 4,6% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar í ár um 0,7% miðað við janúar í fyrra.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar. Þar segir að greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 18,0% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 9,1% í janúar 2011 miðað við sama mánuð árið áður.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 2,4% (miðað við vísitöluna í janúar) sem veldur 1,7% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×