Viðskipti innlent

Afnám gjaldeyrishafta háð niðurstöðu í Icesave

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að afnám á gjaldeyrishöftunum sé háð niðurstöðunni í Icesave deilunni.  Ef Icesave verður samþykkt verður afnámið mun auðveldara en ella.

Már segir að fyrstu skrefin í afnámi haftanna sé að losa út aflandskrónur og binda þær hérlendis. Þetta er hægt án lausnar í Icesave deilunni.

„Þegar kemur að því að lyft almennum höftum af útflæði gjaldeyris verður ríkissjóður að hafa tekið erlent lán og þar með staðfest getu sína á erlendum mörkuðum,“ segir Már.

„Ef niðurstaðan er Nei verður að meta hvort ríkisjóður kemst á erlendan markað á næstu mánuðum og misserum.  Ef það gerist ekki verður seðlabankinn að halda áfram að kaupa gjaldeyri sem þýðir veikara gengi,  lægri kaupmátt og meiri verðbólgu.“

Þetta kom fram í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á opnum fundi þriggja nefnda Alþingis sem nú stendur yfir. Nefndirnar eru efnahags- og skattanefnd, fjárlaganefnd og viðskiptanefnd. Efni fundarins er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×