Vodafone hækkar farsíma- og heimasímagjöld 4. mars 2011 13:40
Breytingar verða á verðskrá Vodafone þann 1. apríl nk. Upphafsgjöld í farsíma og heimasíma munu hækka en mánaðargjöld á almennum þjónustuleiðum fyrir einstaklinga munu ekki breytast svo dæmi séu tekin. Fjallað er um málið á vefsíðu Vofafone. Þar segir að um er að ræða alhliða endurskoðun á verðskrá, sem ætlað er að endurspegla betur kostnað við rekstur ólíkra þjónustuleiða. Þannig lækkar verð á sumum þjónustuleiðum, á meðan verð á öðrum hækkar eða stendur í stað. Leiga á myndlyklum frá Vodafone lækkar um 31%, úr 797 kr. í 549 kr., en samhliða breytingunni fellur niður afsláttur sem viðskiptavinir áskriftarstöðva - t.d. Stöðvar 2 og Skjás Eins - hafa notið. Mánaðargjöld á almennum þjónustuleiðum fyrir einstaklinga munu ekki breytast, en upphafsgjald í farsíma og heimasíma mun hækka um 0,3 krónur. Mánaðargjald eldri þjónustuleiða mun hækka, en mismikið eftir þjónustuleið. Ítarlegar upplýsingar um breytingar á einstökum þjónustuleiðum er að finna á vefsíðu Vodafone. Viðskiptavinum sem nýta gamlar þjónustuleiðir er bent á, að nýrri þjónustuleiðir eru að öllu jöfnu hagkvæmari kostur. Kostnaður við rekstur Vodafone hefur aukist nokkuð á undanförnum árum, án þess að honum hafi verið ýtt yfir á neytendur. Þar má bæði nefna hækkun á ýmsum aðföngum og sköttum. Þvert á móti hefur Vodafone boðið hagstæðari þjónustuleiðir en áður með miklum ávinningi. Að meðaltali hefur því kostnaður viðskiptavina við símaþjónustu dregist verulega saman. Þannig hefur kostnaður viðskiptavina Vodafone með farsíma áskrift að meðaltali lækkað um 11% frá ársbyrjun 2008, þrátt fyrir að notkunin hafi aukist. Kostnaður viðskiptavina með farsíma í frelsi hefur lækkað um 23% og af heimasímaþjónustu um 33%. Í síðastnefnda tilvikinu hefur notkunin þó dregist saman en ekki aukist, þar eð hún hefur færst yfir í farsímann, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Sjá meira