Eignir Kaupþings jukust um 135 milljarða í fyrra 4. mars 2011 13:53
Verðmat eigna Kaupþings banka jókst um 135 milljarða króna eða um 17% á árinu 2010. Þá hefur verið leiðrétt fyrir áhrifum vegna 12% styrkingar á gengi krónunnar á tímabilinu. Óveðsettar eignir bankans eru metnar á 817 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýjum fjárhagsupplýsingum í skýrslu fyrir kröfuhafa bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings. Þar segir að stór hluti lánasafns Kaupþings hefur verið endurskipulagður á árunum 2009 og 2010 og má m.a. rekja hækkun á virði eigna bankans til þess, markvissrar eignastýringar og bættra markaðsaðstæðna. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir gengisáhrifum nemur raunaukning á virði eigna á árinu 2010 135 milljörðum króna, en til samanburðar nam raunverðmætaaukning 129 milljörðum króna á árinu 2009. Án leiðréttingar fyrir gengisáhrifum nam verðhækkun eigna 48 milljörðum króna á árinu 2010 og 214 milljörðum króna á árinu 2009. Góður árangur hefur náðst í öflun þóknanatekna. Þóknanatekjur af starfsemi skilanefndar á árinu 2010 námu um 1,3 milljörðum króna, sem er í takt við þóknanatekjur bankans á árinu 2009. Þóknanatekjur bankans standa straum af rekstri eignasafnsins á Íslandi. Heildarrekstrarkostnaður bankans á árinu 2010 var 6,5 milljarðar króna sem er 0,29% af nafnvirði heildareigna sem námu 2.251 milljarði króna við árslok 2010. Stærstur hluti kostnaðarins, eða um 60%, er til kominn vegna aðkeyptrar sérfræðiráðgjafar sem nam tæplega 4 milljörðum króna. Helstu útgjöld koma til vegna erlendra ráðgjafa bankans, kostnaðar við uppgjör á afleiðusafni bankans og kostnaðar í tengslum við aðgerðir og rannsóknarvinnu vegna endurheimtuaðgerða erlendis. Aðgerðir og vinna við hið síðastnefnda hefur staðið yfir frá haustinu 2008 og krafist mikillar samvinnu við alþjóðleg lögfræði- og endurskoðunarfyriræki, þetta er kostnaður sem skilanefnd stefnir á að fáist til baka í gegnum dómsmál. Þá renna 837 milljónir króna í skattgreiðslur til ríkissjóðs, eða sem samsvarar 13% af heildarkostnaði. Frá upphafi hefur skilanefnd fylgt skipulögðu ferli við meðferð og ráðstöfun eigna. Bankinn hefur gert ítarlega greiningu á öllum lánastöðum og mótað áætlun um endurheimtur með það að markmiði að hámarka virði þeirra. Bankinn er ekki markvisst að selja eignir og hefur staðfastlega hafnað öllum tilboðum um sölu á hrakvirði. Á árinu 2010 voru 17 lán gerð upp og námu greiðslur vegna þeirra 23 milljörðum króna og var meðalinnheimtuhlutfall lánanna rúmlega 96%. Handbært fé Kaupþings stóð í 231 milljarði króna þann 31. desember og jókst um 55 milljarða frá síðustu áramótum, þrátt fyrir 17 milljarða neikvæð áhrif vegna gengisstyrkingar krónunnar. Að auki greiddi skilanefnd Kaupþings á árunum 2008 og 2009 um 130 milljarða króna til innstæðueigenda hjá útibúum Kaupþings í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki og gerði þannig upp allar innstæður í útibúum bankans erlendis. Því munu engar slíkar forgangskröfur lenda á íslenskum skattgreiðendum. 28.167 kröfum var lýst í bú bankans fyrir kröfulýsingarfrest 30. desember 2009 og nam heildarfjárhæð þeirra 7.316 milljörðum króna. Slitastjórn Kaupþings náði yfirlýstu markmiði sínu að ljúka yfirferð og afstöðutöku til allra krafna sem lýst var á hendur bankanum fyrir fund með kröfuhöfum 3. desember 2010. Nú þegar hafa kröfur að upphæð 1.814 milljarðar króna verið dregnar til baka eða þeim endanlega hafnað af slitastjórn án mótmæla og nemur heildarfjárhæð mögulegra krafna í bú bankans því 5.502 milljörðum króna. Kröfur að upphæð 2.883 milljarðar króna hafa verið samþykktar af slitastjórn en þó ríkir ágreiningur um stærstan hluta útistandandi krafna eða sem nemur 5.150 milljörðum króna.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira