Ekki skýr teikn á lofti um að hagvöxtur sé hafinn 8. mars 2011 12:38
Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar um þróun landsframleiðslunnar má segja að útlit sé fyrir að kreppan hafi náð hámarki á síðasta ári, en ekki eru þó enn skýr teikn á lofti um að vöxtur sé hafinn að nýju í hagkerfinu. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýjar tölur Hagstofunnar um að verg landsframleiðsla (VLF) hafi dregist saman um 3,5% að raungildi á árinu 2010. Þetta er annað árið í röð sem samdráttur mælist í VLF, en hann nam 6,9% árið 2009. Samanlagt hefur því VLF dregist saman um rétt rúm 10% frá árinu 2008 og var landsframleiðslan í fyrra lítið eitt meiri að raungildi en árið 2005. Sé miðað við VLF á mann erum við komin aftur til ársins 2004. „Niðurstaðan er í samræmi við spá okkar frá í fyrrahaust, sem hljóðaði upp á 3,1% samdrátt á árinu 2010. Nýlegar spár gerðu ráð fyrir samdrætti á bilinu 2,7 - 3,7% og var Seðlabankinn þar bjartsýnastur en ASÍ svartsýnast," segir í Morgunkorninu. Einkaneysla var nánast óbreytt í fyrra milli ára eftir 15,6% samdrátt á árinu 2009 og 7,9% samdrátt árið 2008. Einkaneyslan árið 2010 var því u.þ.b. 22% minni en árið 2007, og var hún lítið eitt hærri að raungildi en árið 2003. Aðrir helstu liðir þjóðarútgjalda drógust talsvert saman árið 2010, samneysla um 3,2% og fjárfesting um 8,1%. Atvinnuvegafjárfesting jókst þó um tæpt 1% í fyrra, en á móti skrapp fjárfesting í íbúðarhúsnæði saman um 17% og fjárfesting hins opinbera minnkaði um 22% á tímabilinu. Útflutningur vöru og þjónustu jókst um 1,1% á þessu tímabili en innflutningur óx um 3,9%. Hlutfall einkaneyslu af VLF var 50,8% og hlutfall fjárfestingar af VLF tæp 13% í fyrra. Eru bæði hlutföllin mjög lág í sögulegu samhengi. Athygli vekur að undanfarin 20 ár hefur hagvöxtur hér á landi verið mjög nálægt meðalvexti í OECD ríkjum. Var vöxturinn að jafnaði 2,4% á ári hérlendis en 2,2% í OECD ríkjunum. Vöxturinn á Íslandi var hins vegar talsvert sveiflukenndari en gengur og gerist í iðnríkjunum, enda hagkerfið lítið. Líkt og við höfum oft bent á áður ber raunar að taka árstíðarleiðréttum tölum um landsframleiðsluna með miklum fyrirvara. Milli ársfjórðunga jókst einkaneysla um 1,6% á síðasta fjórðungi ársins 2010 og fjármunamyndun óx um 14,9% á sama tíma. Miðað við ofangreindar tölur má segja að útlit sé fyrir að kreppan hafi náð hámarki á síðasta ári, en ekki eru þó enn skýr teikn á lofti um að vöxtur sé hafinn að nýju í hagkerfinu."
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira