Heildarskuldir ríkissjóðs 106% af landsframleiðslu 9. mars 2011 09:03
Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.629 milljörðum króna í lok 2010 eða sem nam 105,8% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Þetta kemu fram í Hagtíðindum í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2010 sem birt hafa verið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að á 4. ársfjórðungi var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 31 milljarð króna eða sem nemur 8% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 19% af tekjum þess. Á sama tíma 2009 var tekjuafkoman neikvæð um 43 milljarða króna eða 11,2% af landsframleiðslu. Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um ríflega 97 milljarða króna árið 2010 eða 6,3% af landsframleiðslu, en til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 149 milljarða króna árið 2009 eða 10,0% af landsframleiðslu Tekjur hins opinbera námu um 651 milljarði króna árið 2010 samanborið við 614 milljarða króna árið áður og er hækkunin milli ára 36 milljarðar króna eða 5,9%. Sem hlutfall af landsframleiðslu námu tekjurnar 42,3%. Mest er hækkunin í tryggingagjöldum (um 19 milljarðar) og sköttum á vöru og þjónustu (um 17 milljarðar), sem skiluðu um 36 milljörðum króna meiri tekjum árið 2010 en árið á undan. Hækkunin í tekju- og eignarsköttum nam um 12 milljörðum króna, en aðrar tekjur — aðallega vaxtatekjur og sala á vöru og þjónustu — lækkuðu hins vegar um 13 milljarða króna. Útgjöld hins opinbera reyndust 748 milljarðar króna árið 2010 eða sem svarar til 48,6% af landsframleiðslu ársins og lækkuðu um 2% milli ára. Stærstu útgjaldaliðirnir eru laun sem áætluð eru 225 milljarðar króna, kaup á vöru og þjónustu 189 milljarðar króna og félagslegar tilfærslur til heimila 120,5 milljarðar króna. Þá er talið að vaxtagjöld hins opinbera hafi verið 93 milljarðar króna árið 2010 (lækkun um 5,6%) og opinber fjárfesting 40 milljarðar króna (lækkun um 31%). Aðrir útgjaldaliðir hafa staðið í stað eða hækka lítillega í krónum talið. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 585 milljarða króna í lok 2010 samanborið við um 551 milljarð króna neikvæða eign árið 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.629 milljörðum króna í lok 2010 eða sem nam 105,8% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 1.566 milljörðum króna árið 2009 eða sem svarar 104,8% af landsframleiðslu.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira