Lífeyrissjóðir hafa afskrifað 105 milljarða í bankabréfum 9. mars 2011 12:22
Lífeyrissjóðir landsins hafa afskrifað 105 milljarða kr. af skuldabréfum innlánsstofnanna frá hruninu haustið 2008. Fyrir hrunið námu eignir sjóðanna 148 milljörðum kr. í þessum bréfum en í dag er staða þeirra 43 milljarðar kr. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um eignir lífeyrissjóðanna. Þar segir að hreinar eignir lífeyrissjóðanna jukust að raungildi um 6,7% í janúar síðastliðnum frá sama tíma í fyrra. Námu hreinar eignir þeirra til greiðslu lífeyris ríflega 1.935 milljörðum kr. og hafa þær aldrei verið meiri í krónum talið. Ef miðað er við nýbirtar tölur Hagstofu um landsframleiðslu samsvöruðu eignir lífeyrissjóðanna í janúarlok 125% af vergri landsframleiðslu síðasta árs. Íslenska lífeyrissjóðakerfið er því enn með þeim öflugustu á heimsvísu á þennan mælikvarða, þótt verulega hafi gefið á bátinn undanfarin misseri. Raunávöxtun sjóðanna hefur þó verið talsvert minni en ofangreindar tölur gefa til kynna, þar sem innflæði í þá vegna iðgjaldagreiðslna er talsvert meira en útgreiðslur vegna lífeyris og úttektar séreignarsparnaðar. „Raunar verður að hafa í huga að ekki eru öll kurl komin til grafar varðandi endanlegt verðmæti tiltekinna eignaflokka sjóðanna í kjölfar bankahrunsins, og þarf að taka framangreindum tölum með þeim fyrirvara,“ segir í Morgunkorninu. „Sjóðirnir eru til að mynda allstórir kröfuhafar í þrotabú gömlu bankanna. Má þar nefna að eignir þeirra í skuldabréfum innlánsstofnana námu148 milljörðum kr. í lok september 2008 en nú í janúarlok námu þær 43 milljörðum kr. Þessar eignir hafa því minnkað um 70% í bókum sjóðanna, en ekki er loku fyrir það skotið að einhver frekari niðurfærsla muni þar eiga sér stað, þótt á hinn bóginn sé heldur ekki hægt að útiloka að niðurstaðan verði hagfelldari þegar eignum gömlu bankanna verður á endanum útbýtt til kröfuhafa.“
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Sjá meira