Sala á steinolíu hefur tífaldast á sex árum 20. júlí 2011 07:30 Steinolía á kaggann. Þessi dældi steinolíu á bílinn sinn á bensínstöð N1 á Ártúnshöfða í gær. Það er töluvert ódýrara en að fylla hann af dísil og áhöld eru um hvort bílnum verður nokkuð meint af. Mynd/HAG
Sala á steinolíu hefur snaraukist á undanförnum árum. Í fyrra var hún tíu sinnum meiri en árið 2005. Mjög hefur færst í vöxt að steinolía sé notuð á eldri dísilbíla, ýmist hrein eða blönduð í dísil, enda er lítrinn af steinolíu tugum króna ódýrari en dísilolíulítrinn. Í tölum frá Flutningsjöfnunarsjóði, sem Fréttablaðið hefur aflað sér, má sjá að salan á steinolíu tók gríðarlegan kipp á milli áranna 2007 og 2008, þegar hún nálega fimmfaldaðist á einu ári. Þetta hefur verið sett í samhengi við verðhækkanir á dísilolíu á árinu 2007, en það ár varð hún í fyrsta sinn dýrari en bensínið. Síðan hefur salan enn aukist og var á síðasta ári yfir 1.120 þúsund lítrar, samanborið við 118 þúsund lítra árið 2005. Heimildir Fréttablaðsins herma að vísbendingar séu um að sala hennar hafi enn aukist það sem af er þessu ári. Hægt er að nálgast steinolíu í dælum á bensínstöðvum og svo virðist sem jafnt megi nota hana í stað dísilolíu á dísilbíla sem ekki eru af allra nýjustu gerð. Nýlegustu dísilvélar hafa búnað sem ekki ræður við steinolíuna. Þeir sem Fréttablaðið ræddi við sögðu að viss áhætta væri engu að síður fólgin í því að nota steinolíuna á eldri dísilbíla, enda kynni það að slíta vélunum hraðar en ella. Ekkert olíugjald leggst á steinolíu enda er hún ekki ætluð sem eldsneyti fyrir ökutæki. Olíugjaldið er 55 krónur á hvern lítra svo það er ljóst að töluverður sparnaður hlýst af því að nota hana í stað dísilolíunnar eða með henni. Þrátt fyrir að ekkert olíugjald leggist á hana er notkun hennar lögleg, ólíkt litaðri dísilolíu sem einnig er undanþegin olíugjaldi. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira