Líkir gjaldeyrishöftunum við Íraksstríðið 6. september 2011 19:04 mynd úr safni
Stjórnmálamenn, hagsmunasamtök og stjórnendur fyrirtækja eru á einu máli um að hægt sé að fara hraðar við afnám gjaldeyrishafta en nú er ráðgert. Einn kallar eftir nýrri áætlun um afnám haftanna, en annar líkir þeim við Íraksstríðið. Á meðan þingmenn ræddu áfram um lögfestingu gjaldeyrishaftanna í þingsal í dag glímdu frummælendur á hádegisverðarfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga við spurninguna um hvort hægt væri að fara hraðar við losun þeirra. Allir sem tóku til máls voru þeirrar skoðunar að aðstæður væru vissulega fyrir hendi til að létta höftum fyrr en ráðgert er, eða að hægt hefði verið að hefjast handa fyrr en raunin var. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi sérstaklega hversu höftin hafa dregist miðað við það sem stefnt var að þegar höftin voru sett á. „Það var lagt upp með það að á gildistíma samstarfsáætlunarinnar við AGS yrðu höftin afnumin, þ.e.a.s. fyrir haustið 2010," segir Bjarni. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, hefur einnig gagnrýnt seinagang við afnám haftanna, en hann vill að aðilar í viðskiptalífinu taki sig saman um að semja nýja áætlun um losun þeirra. „Það hefur sýnt sig að sú grunnforsenda, sem sú áætlun sem nú liggur fyrir hvílir á, stenst ekki. Þegar svo er, þá er eiginlega ekkert annað að gera en að stokka spilin upp," segir Páll. Bjarni tekur undir með Páli um að nýja og metnaðarfulla áætlun þurfi um afnám haftanna, en fyrst þurfi að setja fram trúverðuga efnahagsstefnu í landinu og móta peningastefnu til framtíðar. Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA, tekur sömuleiðis undir þessar hugmyndir um nýja markvissari áætlun um losun hafta, en Orri Hauksson hjá Samtökum iðnaðarins líkti gjaldeyrishöftunum við Íraksstríðið á fundinum. „Þetta var nú kannski ekki smekkleg líking, en líkindin eru þau að það vantar algjörlega útgönguáætlun. Það var auðvelt að komast inn, en um leið og þangað er komið vita menn ekkert hvernig þeir ætla að komast út. Það virðist líka hafa verið hugmyndafræðin á bak við höftin," segir Orri.
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira