Aukning ferðamanna skilar ekki samsvarandi auknum tekjum 24. október 2011 07:48
Sú mikla fjölgun erlendra ferðamanna til landsins, sem orðið hefur á síðustu árum, hefur ekki skilað sér í samsvarandi auknum tekjum. Þetta kemur fram í athugun greiningar Arion banka og fjallað er um í Markaðspunktum hennar. Niðurstaðan er að síðustu ár hafa tekjur á hvern ferðamann minnkað umtalsvert í evrum talið. Sú mikla fjölgun sem varð meðal erlendra ferðamanna á síðustu árum hafi að mestu stafað af auknu streymi „sparsamari ferðamanna" sem hafa nýtt sér hagstætt gengi krónunnar. Þetta sést einna helst þegar tölur yfir eyðslu á hvern ferðamann í evrum talið eru skoðaðar. Frá árinu 2002 hefur fjöldi ferðamanna aukist um 67% en á sama tíma hefur neysla hvers og eins ferðamanns, mæld í evrum, dregist saman um 44%. Annað atriði sem styður þetta er sá viðsnúningur sem orðið hefur í eftirspurn eftir gistingu. Þannig varð um 20% aukning í eftirspurn eftir annarri gistingu en á hótelum árið 2009 á sama tíma og lítil breyting varð á eftirspurn vegna hótelgistinga. Greiningin telur að mikilvægt sé að laða hingað til lands ferðamenn sem eyða meiru en meðalferðamaðurinn. Slíkt sé án ef hagkvæmasta leiðin til að auka tekjur af ferðamönnum án þess að ferðamannastraumurinn til landsins gangi of nærri náttúrunni.
Mest lesið Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Sjá meira
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent