Nýtt íbúðahótel tekur til starfa á Hverfisgötu 24. október 2011 09:01
Nýtt íbúðahótel, Reykjavík Residence Hotel, hefur tekið til starfa að Hverfisgötu 45 í Reykjavík, húsi sem byggt var árið 1914 og hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina. Í tilkynningu segir að hótelið samanstandi af tíu stúdíóíbúðum, tveimur tveggja herbergja íbúðum og tveimur þriggja herbergja íbúðum. Hótelið hefur verið opnað í áföngum, fyrstu íbúðirnar í mars sl. og þær síðustu í byrjun október. Hótelið hefur nú þegar fengið lofsamlega dóma gesta, m.a. á hótelbókunarvefsíðum. Fyrsti eigandi Hverfisgötu 45 var Matthías Einarsson læknir, en ekki er vitað hver var hönnuður hússins. Seinna var þar sendiráð Noregs fram á áttunda áratug síðustu aldar og einnig var Söngskólinn í Reykjavík þar til húsa í nærri aldarfjórðung. Síðastliðin tíu ár hefur verið rekið gistiheimili í húsinu, sem nú hefur verið breytt í íbúðahótel. Hönnun endurbótanna var í höndum Teiknistofu Erlings G. Pedersen og iðnmeistari var Þórhallur Borgþórsson. Verkefnisstjóri var Þórður B. Bogason. Eigandi hótelsins er Íslensk fjárfesting og hótelstjóri er Ilhan Erkek. Allar endurbætur á húsinu voru unnar í fullu samráði við Húsafriðunarnefnd. Í endurbótunum var leitast við eftir fremsta megni að færa húsið í því sem næst upprunalega mynd að utanverðu, en á þeirri hlið hússins sem snýr að Hverfisgötu er götumyndin friðuð.
Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Sjá meira