Forstjóri FME: Niðurstaða héraðsdóms kom á óvart 24. október 2011 14:12 Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. „
Þessi niðurstaða kom á óvart," segir Gunnar Andersen, forstjóri FME, um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun, þess efnis að ákvörðun FME er varðar EA fjárfestingarfélag hf., forvera MP banka, var dæmd ógild og sekt í tengslum við hana felld niður. FME komst að þeirri niðurstöðu að ein fjárhættuskuldbinding bankans næmi 126 prósentum af eigin fé, eða fimmfalt hærri en 25% hámark segir til um. FME taldi tíu félög eigenda vera fjárhagslega tengd og ættu fjárhættuskuldbindingarnar því að teljast sem ein. Við þessa athugun byggði FME einnig á mati á tengslum þeirra Margeirs Péturssonar, Sigfúsar B. Ingimundarsonar og Sigurðar Gísla Pálmasonar sem sátu allir í stjórn MP banka og Jóns Pálmasonar sem sat í varastjórn. Að mati FME voru tengslin þess eðlis að þeir væru með óbein yfirráð yfir félögunum og hefðu myndað tengsl sem taka ætti sem sameiginlega áhættu í rekstri bankans. Héraðsdómur komst að annarri niðurstöðu í morgun og taldi ekki sýnt fram á að tengslin væru með þeim hætti sem haldið var fram í ákvörðun FME. Hún var því felld úr gildi og verður FME að greiða lögfræðikostnað EA fjárfestingarfélags upp á tvær milljónir króna, samkvæmt dómi héraðsdóms frá því í morgun. Gunnar segist ekki geta tjáð sig frekar um málið að svo stöddu. FME eigi eftir að fara í gegnum dóminn og meta endanlega hvort honum verði áfrýjað, og einnig hvort staðfesting hans í Hæstarétti kunni að hafa áhrif á hvernig fjallað er um mál tengdra aðila hjá stofnuninni.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira