Viðskipti innlent

Ráðherra neitar afskiptum af Bankasýslu ríkisins

Höskuldur Kári Schram skrifar
Stjórn Bankasýslu ríkisins fór þess leit við fjármálaráðherra í dag að vera leyst frá störfum. Í bréfi sem stjórnin sendi ráðherra kemur fram að umræðan um ráðningu nýs forstjóra hafi vegið að trúverðugleika bankasýslunnar og rofið friðinn um starfsemi hennar.

Ráðning Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins hefur verið harðlega gagnrýnd.

Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar, og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sagði hana vera hneyksli og til þess fallna að rýra trúverðugleika stofnunarinnar.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, óskaði í kjölfarið eftir upplýsingum frá stjórn bankasýslunnar um ráðningarferlið og hvernig umsækjendur voru metnir.

Stjórnin hefur hingað til varið þá ákvörðun að ráða Pál Magnússon og meðal annars vísað til þess að í ráðningarferlinu hafi verið stuðst við viðurkenndar matsaðferðir og mælingar.

Þetta hefur ekki dugað til að skapa frið um stofnuna og því ákvað stjórnin í dag að óska eftir því að vera leyst frá störfum.

Í bréfi sem stjórnin sendi fjármálaráðherra, segir meðal annars að það sé niðurstaða stjórnarmanna að afskipti utanaðkomandi afla geri þeim ókleift að starfa áfram á þeim faglega grundvelli sem sé nauðsynlegur. Í áðurnefndri umræðu hafi verið vegið að trúverðuleika bankasýslunnar og friður rofinn um starfsemi hennar. Er sérstaklega vísað í viðbrögð alþingismanna í þessu samhengi.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir það miður að stjórnin hafi ákveðið að segja af sér.

„Það er auðvitað þeirra ákvörðun, þeirra niðurstaða og ekkert annað að gera nema vinna samkvæmt því og verkefnið þá væntanlega að skipa nýja stjórn sem fyrst þannig að það verði lágmarkstruflun á starfsemi bankasýslunnar,“ segir Steingrímur.

Varst þú búinn að óska þess eða fara þess á leit við stjórnarmeðlimi að þeir myndu segja af sér?

„Nei,“ svarar Steingrímur. 

Ákvörðun stjórnar bankasýslunnar kemur þó ekki í veg fyrir að Páll Magnússon taki við starfi forstjóra.

Er eðlilegt að þínu mati að Páll Magnússon taki við starfi forstjóra eftir að stjórnin er búinn að segja af sér?

„Ég ætla bara að halda mig við það sem ég hef sagt að það er eðlilegt að það ríki friður um svona starfsemi og það hefur ekki tekist vel til fyrst að stjórnin telur sig knúin til að segja af sér. Það eru vonbrigði en við vinnum auðvitað úr því,“ segir Steingrímur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×