Norðurlönd draga sig úr spilltum sjóði 25. janúar 2011 08:46
Bæði Danmörk og Svíþjóð hafa ákveðið að hætta greiðslum sínum til Alþjóðasjóðsins í baráttunni gegn eyðni, berklum og malaríu. Ástæðan er mikil spilling innan stjórnar sjóðsins. Í frétt um málið í Berlingske Tidende viðurkennir forstjóri sjóðsins, prófessorinn Michael Kazatchkine að spillingin sé vandamál. Sjóðurinn hefur dregið að sér þekkt nöfn eins og Bill Gates og Bono en hann er fjármagnaður af auðugri þjóðum heimsins. Í verstu tilvikum hafa allt að tveir þriðju af fjárframlögum til sjóðsins farið í mútugreiðslur. Því hafa dönsk stjórnvöld ákveðið að greiða ekki árlegt framlag sitt til sjóðsins í ár en það nemur 175 milljónum danskra kr. Frá því að sjóðurinn var stofnaður árið 2002 hafa Danir greitt 1,2 milljarða danskra kr. eða tæplega 25 milljarða kr. til sjóðsins. Svíar ákváðu fyrir tveimur dögum að hætta við greiðslu sína upp á 85 milljónir dollara til sjóðsins þar til stjórn hans hefur leyst vandamálin sem spillingin hefur valdið. Sören Pind einn af ráðherra þróunarmála í Danmörku segir að hann muni ekki afgreiða framlag Dana í sjóðinn fyrr en hann hafi rætt málið við sænska samráðherra sinn. Sem stendur ræður sjóðurinn yfir 21,7 milljörðum dollara eða rúmlega 2.500 milljörðum kr.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira