Lánshæfi Írlands það sama og Íslands hjá Moody´s 15. apríl 2011 08:23
Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Írlands um tvo flokka og er einkunnin nú aðeins einu haki frá ruslflokki eins og lánshæfiseinkunn Íslands. Horfur eru neikvæðar á einkunn Írlands. Í frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni er sagt að einkunn Írlands, Baa3 sé sú sama og Íslands, Túnis, Rúmeníu og Brasilíu. Írland glímir nú við verstu bankakreppu í Evrópu og talið er að írskir skattgreiðendur muni þurfa að borga allt að 100 milljarða evra, eða um 16.300 milljarða kr. vegna þess að írsk stjórnvöld ákváðu að ábyrgjast skuldir írsku bankanna. Gary Jenkins greinandi hjá Evolution Securities í London segir að með þessari lækkun á lánshæfinu hjá Moody´s sé Írland komið í óþægilegustu stöðuna í lánshæfismatinu, aðeins einu skrefi frá ruslflokknum.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira