Barnið átti grunlausan blóðföður á Íslandi 24. ágúst 2011 07:00 LÖGREGLAN Fann fullburða sveinbarn í ruslageymslunni.
Niðurstöður DNA rannsóknar hafa leitt í ljós að sveinbarn sem litháísk móðir skildi eftir nýfætt og andvana í ruslageymslu við Hótel Frón í júlí í sumar átti blóðföður hér á landi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Faðirinn og móðirin bjuggu saman heima hjá föður hans um skeið eftir að hún kom til Íslands frá Litháen í október á síðasta ári, en slitu síðan samvistir. Faðir barnsins hafði ekki grun um að konan væri barnshafandi fremur en aðrir sem umgengust hana. Hún hefur enn ekki gengist við því að hafa alið barnið. Það var laugardaginn 2. júlí sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann nýfætt andvana sveinbarn, sem komið hafði verið fyrir í plasti þar sem það var ekki fyrir sjónum manna í ruslageymslu við áðurnefnt hótel. Rúmlega tvítug kona hafði skömmu áður fengið aðstoð á Landspítala vegna mikilla blæðinga. Þar töldu læknar að hún hefði fætt barn skömmu áður eða á síðasta sólarhring, þrátt fyrir að hún segðist ekki kannast við að hafa verið ófrísk. Hún hafði unnið sem herbergisþerna á umræddu hóteli og mun hafa fætt barnið þar. Lögregla taldi ljóst að barnið hefði verið á lífi og heilbrigt þegar það fæddist og er konan ein talin bera ábyrgð á andláti þess. Konan var úrskurðuð í gæsluvarðhald og til að sæta geðrannsókn. Hún sætir farbanni til 1. september. - jss
Fréttir Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira