Viðskipti innlent

Seðlabankinn hækkar dráttarvexti

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans hinn 17. ágúst sl. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. september nk. og verða 11,50% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2011.

Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans í  mánaðarlegri tilkynningu bankans um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru aftur á móti óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2011:

Vextir óverðtryggðra útlána 5,25%

Vextir verðtryggðra útlána 4,3%

Vextir af skaðabótakröfum 3,50%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×