Hættulegt efni í mörgum þekktum fatamerkjum 24. ágúst 2011 09:37
Hættulegt efni sem veldur truflunum á hormónastarfsemi , fóstursköðum og ófrjósemi er að finna í fötum frá mörgum heimsþekktum fataframleiðendum. Efnið sem hér um ræðir heitir nonylphenol og er notað til að vaska umframlit úr fötum. Í nýrri rannsókn sem unnin var á vegum Greenpeace samstakanna fannst efnið í 52 af þeim 72 fatamerkjum sem könnuð voru. Meðal fataframleiðenda sem nota efnið má nefna Hennes & Mauritz, Adidas, Abercrombie and Fitch, Calvin Klein. Lacoste og Ralph Lauren. Sem fyrr segir er efnið notað til að vaska umframlit úr fötum við framleiðslu þeirra. Neytendur þvo svo afganginn af efninu úr fötunum í þvottavélum sínum og þaðan berst það svo út í náttúruna. Innan Evrópusambandsins er bannað að nota nonylphenol við fatagerð. Það er hinsvegar ekki bannað að flytja inn föt til ESB-landa sem meðhöndluð hafa verið með þessu efni. Nomylphenol er á lista Evrópusambandsins yfir efni sem valda truflunum á hormónastarfsemi. Einnig veldur efnið fóstursköðum hjá þunguðum konum og getur valdið ófrjósemi.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira