OR tapaði 3,8 milljörðum á fyrri helmingi ársins 24. ágúst 2011 15:25
Tap Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á fyrri hluta ársins nam 3,8 milljörðum króna samanborið við 5.1 milljarðs hagnað á sama tímabili 2010, þegar gengisþróun var hagfelldari en nú. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að regluleg starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur skilaði betri afkomu fyrstu sex mánuði þessa árs en í fyrra. Það má rekja til aukinna tekna og aðhalds í rekstri. Handbært fé frá rekstrinum nam 8,9 milljörðum króna og hækkaði um rúma 2 milljarða króna frá sama tímabili 2010. Vegna óhagstæðrar gengisþróunar á fyrri helmingi ársins 2011 voru fjármagnsliðir neikvæðir. Þetta gerðist þrátt fyrir hækkun álverðs á tímabilinu, sem eykur bókfært virði innbyggðra afleiða vegna raforkusölusamninga OR til stórnotenda. Hækkun á bókfærðum skuldum vegna tæplega 6% gengislækkunar á tímabilinu vó þyngra. Árshlutareikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2011 var samþykktur og áritaður af stjórn og forstjóra á fundi stjórnar í dag. „Það hefur náðst talsverður árangur í lækkun rekstrarkostnaðar hjá fyrirtækinu. Launagreiðslur hafa lækkað, bifreiðakostnaður sömuleiðis og dregið hefur verulega úr fjárfestingum í veitukerfunum. Halda þarf áfram á þeirri braut. Áhrif gengis íslensku krónunnar eru hins vegar neikvæð og skyggja á árangur í rekstri. Enn eru því ærin verkefni framundan," segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR í tilkynningunni. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um rúma 11 milljarða króna á tímabilinu, en voru jákvæðir um tæpa 3 milljarða króna sama tímabil árið áður. Eigið fé þann 30. júní 2011 var 49,5 milljarðar króna en var 52,8 milljarðar króna 31. desember 2010. Eiginfjárhlutfall var 16,9% þann 30. júní 2011 en var 18,4% í árslok 2010.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira