Segir Kroll hafa beinlínis hótað starfsfólki Glitnis Valur Grettisson skrifar 30. september 2010 19:16 Pálmi Haraldsson.
Málshöfðunin fyrir dómstólnum í New York sýnir að mati Pálma Haraldssonar, fyrrverandi eiganda Fons ehf., óskiljanlegt offors, sem einkennir starfshætti slitastjórnar og skilanefndar Glitnis banka. Þetta kemur fram í greina gerð Pálma vegna tveggja dómsmála sem Glitnir hefur höfðað á hendur honum og sex annarra. Þar segir hann ennfremur að starfsmenn Glitnis hafi þurft að þola beinar hótanir af hálfu rannsóknarfyrirtækisins Kroll. Í greinagerðinni, sem hann sendi fjölmiðlum í kvöld, kemur fram hörð gagnrýni á skilanefnd og slitastjórn Glitnis. Meðal annars gerir Pálmi alvarlegar athugasemdir við að höfðað hafi verið mál gegn honum bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Svo segir hann í málsvörn sinni: „Þessi fyrirbæri starfa án eiginlegs umboðs kröfuhafa bankans, sem þó eiga alla hagsmuni af rekstri Glitnis. Glitnir hefur flest einkenni þrotabús, þótt meðferðin sé kennd við ,,slit". Ákvarðanir um 6 málssóknirnar voru ekki bornar undir kröfuhafana, en ljóst má vera að kostnaðurinn við þær er gríðarlegur." Þá vekur athygli að í greinagerðinni er rannsóknarfyrirtækið Kroll sakað um að hafa hótað starfsmönnum Glitnis beint í umdeildum yfirheyrslum innan bankans. Orðrétt segir í greinagerðinni: „Stefnandi [Glitnir] mun hafa samið við alþjóðlegt einkarannsóknarfyrirtæki, Kroll að nafni, um að það framkvæmdi rannsóknir á bankanum. Þetta fyrirtæki hefur skipulagt yfirheyrslur yfir núverandi og fyrrum starfsmönnum Glitnis í þar til gerðu yfirheyrsluherbergi, sem að mati umbjóðanda míns eru andstæðar lögum. Pálmi hefur haft spurnir af yfirheyrsluaðferðum, sem hafa falist í kröfum um að starfsmenn breyttu framburði sínum ef þeir uppfylltu ekki væntingar þeirra sem spurðu. Starfsmenn hafi setið undir beinum hótunum." Hægt er að lesa greinagerðina í heild hér fyrir neðan.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira