Viðskipti innlent

Strauss-Kahn ítrekar samúð með Íslendingum

Dominique Strauss-Kahn forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ítrekaði samúð sína með íslenskum almenningi í viðtali við austrríska blaðið Standard um helgina.

Aðspurður út í afstöðu Íslendinga í Icesave-málinu segir Strauss-Kahn að hann skilji fullkomnlega að Íslendingar séu reiðir vegna allra skuldanna sem bankar landsins skildu eftir.

„Fyrir manninn á götunni í Reykjavík er það algerlega ósanngjarnt að hann standi eftir með skuldir bankanna þar sem hann naut ekki góðs af starfsemi þeirra," segir Strauss-Kahn.

Strauss-Kahn segir að íslensku bankarnir hafi tekið ótrúlega áhættu og fallið fyrir vikið.

Viðtalið snérist annars að mestu um austurtíska banka- og fjármálakerfið en Strauss-Kahn telur að það sé ekki lengur í hættu á hruni þrátt fyrir mikla lánaáhættu austurríska banka í löndum Austur-Evrópu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×