Norrænir ráðherrar rífast um Icesave 12. mars 2010 09:47 Jonas Gahr Störe. Mynd/Valgarður Gíslason
Mikil óeining er komin upp meðal norrænna ráðamanna um hvort standa eigi fast við þá kröfu að Icesave deilan verði leyst áður en Norðurlöndin reiða fram fjárhagsaðstoð sína til Íslands í gegnum áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).Norðmenn hafa nú látið alfarið af kröfunni um lausn Icesave deilunnar sem skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð þeirra. Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs tók af allan vafa um það á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í gærdag.„Það eru engin bein tengsl milli áframhaldandi áætlunar AGS og Icesave," hefur Reuters eftir Jonas Gahr Störe á fundinum sem haldinn var í tengslum við fund norrænu utanríkisráðherranna í borginni."Svo lengi sem skilyrði AGS eru uppfyllt mun Noregur ekki segja nei á fundum hjá AGS," segir Störe í samtali við NTB fréttastofunaStöre segir að staðan sem komin sé upp er ekki sú besta. Í umfjöllun um málið á vefsíðunni e24.no segir að Störe hafi þá skoðun að öll Norðurlöndin ættu að fara að fordæmi Noregs og skilja í sundur Icesave deiluna og neyðaraðstoðina.Svíar standa fast á því að Icesave deilan verði leyst áður en sænska fjárhagsaðstoðin verður reidd af hendi. Fréttir að undanförnu benda til að Finnar muni fylgja Svíum að málum. Anders Borg fjármálaráðherra Svía hefur verið harður á því að leysa verði Icesave deiluna fyrst og hefur hlotið skammir frá Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra fyrir.Danir eru síðan mitt á milli í deilunni en á vefsíðu stjórnarráðisins er greint frá fundi Össurar með Lene Espersen utanríksráðherra Danmerkur þar sem Icesave var til umræðu. „Lene Espersen lýsti yfir ríkum skilningi á sjónarmiðum Íslands og sagði að hún vonaðist eftir samkomulagi í málinu sem fyrst," segir á vefsíðunni.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira