Landsframleiðslan á mann enn há á Íslandi 9. febrúar 2010 11:19
Greining Íslandsbanka fjallar í dag um breytingar á landsframleiðslunni á Íslandi í kreppunni. Þar segir að áhugavert er í því sambandi að skoða kaupmátt landsframleiðslunnar á mann en á þann mælikvarða stóð Ísland afar vel fyrir hrunið með eina hæstu landsframleiðslu á mann í heimi. Sú staða versnar ekki mjög mikið þrátt fyrir kreppuna. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að þannig var Ísland með 8. hæstu landsframleiðslu á mann svona mælda í samanburði 33 iðnvæddra ríkja í gagnagrunni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) árið 2007. Árið 2009 var landið komið í 12 sæti í þessum 33 ríkja samanburði. Þetta segir að þrátt fyrir kreppuna eru efnahagsleg lífsgæði hér á landi góð í alþjóðlegum samanburði metin með þessum hætti. Kaupmáttur landsframleiðslu á mann var þannig í fyrra svipaður hér á landi og hann var í Danmörku, Ástralíu og Svíþjóð. Hann var hins vegar 25% hærri í Bandaríkjunum en 6% lægri í Bretlandi. Ýmis Evrópuríki standa afar illa á þennan mælikvarða. Þannig er landsframleiðsla á mann svona mæld einungis 59% í Portúgal af því sem hún er hér, 76% á Írlandi og 79% á Ítalíu. Oft er það svo að Ísland er talið vera stærra hagkerfi en það er í raun. Samkvæmt samantekt AGS á landsframleiðslu einstakra landa metið í dollurum var landsframleiðslan hér á landi 11,8 milljarðar bandaríkjadala í fyrra. Er þetta 0,08% af landsframleiðslunni í Bandaríkjunum á sama tíma og 0,5% af landsframleiðslu Bretlands. Í samanburði við hin norðurlöndin er íslenska hagkerfið heldur ekki stórt. Í fyrra var landsframleiðslan hér á landi 2,9% af stærð sænska hagkerfisins, 3,2% af stærð norska hagkerfisins, 4,9% af stærð finnska hagkerfisins og 3,8% af stærð danska hagkerfisins. Íslenska hagkerfið hefur á þennan mælikvarða, og flesta aðra líka, skroppið umtalsvert saman í fjármálakreppunni. Þannig var landsframleiðslan hér á landi 20,3 milljarðar bandaríkjadala á árinu 2007 metið á gengi þess tíma. Þá var það 0,14% af stærð bandaríska hagkerfisins árið 2007 og 0,73% af stærð breska hagkerfisins. Einnig var það þá 4,5% af stærð sænska hagkerfisins, 5,2% af stærð þess norska, 8,3% af stærð finnska hagkerfisins og 6,6% af stærð danska hagkerfisins. Flækja má ofangreindan samanburð með því að bera saman hversu mikið landsframleiðslan kaupir á hverjum stað, þ.e. að finna raunvirði landsframleiðslunnar og hvernig hún hefur þróast í fjármálakreppunni. Er þá tekið tillit til þess að hér á landi er margt umtalsvert ódýrara í dag í dollurum talið en það var fyrir kreppuna. Er þessu ágætlega lýst með raungengi krónunnar sem nú er í sögulegu lágmarki og var í fyrra á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 36% lægra en það var árið 2007. Þetta breytir því svo sem ekki að íslenska hagkerfið er lítið en sýnir að kaupmáttur landsframleiðslunnar hefur skroppið minna saman síðan 2007 en hreinn samanburður í dollurum gefur tilefni til að ætla. Mælt í jafnvirðisgildi gjaldmiðla (PPP) var landsframleiðslan hér á landi 0,09% af landsframleiðslunni í Bandaríkjunum árið 2007 en er nú 0,08%. Í samanburði við breska hagkerfið hefur það íslenska svona metið farið úr 0,57% á þessum tíma niður í 0,55%.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira