Tekinn með allt niðrum sig 18. október 2010 00:01 Forstjóri og stjórnendur fasteignafélags sem FL Group og Donald Trump tengdust eru sakaðir um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu.
viðskipti Fyrrverandi fjármálastjóri bandaríska fasteignafyrirtækisins Bayrock Group telur að lán sem fyrirtækið tók hafi runnið í vasa Tevfiks Arif, forstjóra þess, og annarra stjórnenda. Lánið hljóðaði upp á fimmtíu milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 5,5 milljarða íslenskra króna, á núvirði. FL Group tók þátt í nokkrum fasteignaverkefnum með Bayrock Group í Bandaríkjunum árið 2007. Arif er viðskiptafélagi bandaríska auðjöfursins Donald Trump en tvö fasteignaverkefnanna báru nafn hans. Verkefnunum hafði átt að vera lokið á þessu ári. Forstjóri Bayrock Group er grunaður um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Hann var handtekinn í Tyrklandi fyrir um hálfum mánuði og er grunaður um að hafa stýrt vændishring fyrir aðra auðjöfra. Handtakan fór fram um borð í skútu við Tyrkland en kynsvall var þar í fullum gangi þegar lögreglan braust um borð. Bandaríska dagblaðið New York Daily News sagði Arif hafa í eiginlegum skilningi verið tekinn með allt niðrum sig. Vændiskonurnar voru frá Rússlandi og Úkraínu og nokkrar voru undir átján ára aldri, að sögn bandarískra fjölmiðla. - jab
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira