Greining dregur úr spá sinni um stýrivaxtalækkun 15. mars 2010 12:04
Greining Íslandsbanka hefur dregið úr spá sinni um stýrivaxtalækkun og reiknar nú með því að peningastefnunefnd Seðlabankans lækki vexti bankans um 0,25-0,50 prósentustig. Í fyrri spá greiningarinnar var gert ráð fyrir 0,50 til 1 prósentustiga lækkun. Vaxtaákvörðnin verður á miðvikudag. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í síðustu fundargerð peningastefnunefndarinnar og yfirlýsingu nefndarinnar eftir fundinn segir að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Gengi krónunnar hefur haldist nokkuð stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun bankans 27. janúar síðastliðinn. Þrátt fyrir að verðbólga hafi aukist nokkuð í febrúar má búast við því að hún verði mjög nálægt spá Seðlabankans um 7,1% verðbólgu á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þá eru verðbólguhorfur góðar og má búast við því að verðbólgan verði í um 3% yfir þetta ár. „Ofangreind stýrivaxtaspá hljóðar upp á minni breytingu á vöxtum en við vorum með áður, en við reiknuðum þá með 0,5-1,0 prósentustiga lækkun," segir í Morgunkorninu. „Ástæðan fyrir því að við búumst við minni vaxtalækkun nú er sá dráttur sem hefur orðið á því að Icesave deilan á milli Breta, Hollendinga og Íslendinga leysist. Byggði fyrri spá á því að samkomulag yrði komið á vaxtaákvörðunardegi en nú virðast vera litlar líkur á því. Á síðasta fundi peningastefnunefndarinnar kom fram að á meðan óvissa um aðgang Íslands að erlendum lánamörkuðum ríkir er svigrúm nefndarinnar til frekari lækkunar vaxta takmarkað." Ennfremur segir að greiningin spáði því að Seðlabankinn muni halda áfram í vaxtalækkunum þegar líður á árið. „Spáum við því að bankinn verði kominn með stýrivexti sína í 6,0 6,5% í lok þessa árs. Reiknum við með því að bankinn haldi núverandi bili óbreyttu á milli vaxta á viðskiptareikningum innlánsstofnana og vaxta á veðlánum bankans en þetta bil er 1,5 prósentustig," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira