Viðskipti innlent

Velta kreditkorta jókst um 15,1% milli ára í janúar

Heildarvelta kreditkorta í janúarmánuði var 28,8 milljarða kr. samanborið við 24,5 milljarða kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 15,1% aukning milli ára.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að heildarvelta kreditkorta jókst um 18,8% í janúar miðað við mánuðinn á undan. Debetkortavelta var í janúar 26,2 milljarða kr. og drógst saman um 34,0 % frá fyrri mánuði.

Sé heildardebetkortaveltan borin saman við sama tíma í fyrra þá hefur heildardebetkortaveltan dregist saman um 3,2 milljarða kr. milli ára eða um 12,1%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×