FME: Landskilum leyft að fara með virkan eignarhlut í NBI 22. janúar 2010 15:54
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Landskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í NBI hf. fyrir hönd Landsbanka Íslands hf. Leyfið er veitt í kjölfar samnings Landsbanka Íslands hf. og íslenska fjármálaráðuneytisins, hinn 15. desember síðastliðinn, m.a. þess efnis að Landsbanki Íslands hf. gæti eignast 18,7% hlut í NBI hf. að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Fjallað er um málið á vefsíðu FME. Þr segir að afstaða Fjármálaeftirlitsins til þess hvort Landsbanki Íslands hf., sem er í greiðslustöðvun og slitameðferð, væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki var neikvæð.Fjármálaeftirlitið tók þó fram að vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem leiddu til samkomulagsins, og vegna þess að það felur í sér sátt á milli aðilanna um rekstur NBI hf. sem ætla má að stuðli að stöðugleika á fjármálamarkaði, kæmi til álita að kanna hvort umsækjandi gæti gripið til ráðstafana sem dygðu til að takmarka óæskileg áhrif eignarhaldsins, sbr. 43. gr. l. nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Niðurstaðan var sú að veita leyfið með skilyrðum um afgerandi ráðstafanir er lúta að fjárhagslegum styrk umsækjanda, eignarhaldi bankans, eftirlitshagsmunum og stefnumiðum eigenda. Eigendur NBI hf. eru nú tveir, Landskil í eigu Landsbanka Íslands hf. sem fer með 18,7% atkvæða og Bankasýsla ríkisins sem fer með 81,3% atkvæða. Tilgangur eignarhalds Landskila er takmarkaður við rekstrarlegt aðhald gagnvart meirihlutaeiganda og veitir hluthafasamkomulag aðilanna minnihlutaeigandunum ákveðin réttindi sem samrýmast því markmiði. Í ljósi ofangreinds og m.t.t. þeirra aðstæðna sem fyrir liggja eru skilyrði Fjármálaeftirlitsins í meginatriðum eftirfarandi: Fjárhagslegur styrkur umsækjanda skal tryggður með aðgangi að sérstökum viðbragðssjóði sem grípa má til ef NBI hf. mætir verulegu andstreymi í rekstri. Var fjárhæð sjóðsins metin af NBI hf. að undirlagi Fjármálaeftirlitsins á grundvelli samræmdrar aðferðafræði sem þróuð var innan ramma úttektar Fjármáleftirlitsins á nýju bönkunum í maí 2009. Eignarhald bankans skal vera í höndum sérstaks dótturfélags Landsbanka Íslands hf. (Landskila) sem hafi ekki aðra starfsemi en þá að fara með eignarhaldið. Útnefning stjórnar og varastjórnar eignarhaldsfélagsins er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og skulu þeir uppfylla kröfur þess, m.a. um þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi. Landskil fara með atkvæðisrétt þann sem Landsbanki Íslands hf. öðlast í NBI hf. og útnefna stjórnarmann Landsbanka Íslands hf. í NBI hf. Félagið tekst á hendur að stuðla að heilbrigðum og traustum rekstri NBI hf. í eigandastefnu sinni og kveður umboðssamningur milli Landsbanka Íslands hf. og Landskila á um stuðning bankans við hana. Er stjórn Landskila gert skylt að gefa skýrslu um framkvæmd þessarar stefnu til Fjármálaeftirlitsins ársfjórðungslega. Heimild Landskila til að fara með virkan eignarhlut er ennfremur bundin því skilyrði að Bankasýsla ríkisins fari áfram með meira en 2/3 hluta atkvæðavægis. Breytist eignarhlutföllin meira en sem því nemur koma skilyrði Fjármálaeftirlitsins til endurskoðunar. Áður hafði Fjármálaeftirlitið kynnt fyrir nýju bönkunum þremur eftirlitskröfur sínar. Þær byggjast á gagngerri úttekt á rekstrarhæfni þeirra miðað við eignasamsetningu, fjármögnun og líklegar efnahagshorfur, sem gerð var í maí sl. Fela kröfurnar m.a. í sér 16% eiginfjárlágmark í stað 8% áður, viðbúnað til að standast nýtt álagspróf sem miðast við óhagstæða efnahagsþróun um lengri tíma en almennt er vænst og strangari kröfur til lausafjárstyrks en verið hefur. Auk þess er það gert að skilyrði fyrir starfsleyfi nýju bankanna að þeir hrindi í framkvæmd ítarlegri áætlun um endurbætur á áhættustýringu og stjórnarháttum.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira