Magma Energy stofnar íslenskt dótturfélag 9. febrúar 2010 11:04 Ásgeir Margeirsson.
Kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation, sem á 40,94% hlut í HS Orku í gegnum dótturfyrirtæki sitt Magma Energy Sweden AB, hefur sett á stofn dótturfyrirtæki hér á landi, Magma Energy Iceland ehf. Í tilkynningu segir að Magma er ennfremur með samning um kaup á 2,16% hlut í HS Orku til viðbótar sem búist er við að ljúki í mars 2010. Magma Energy Iceland ehf. er til húsa í Reykjanesbæ og hefur Ásgeir Margeirsson, sem áður stýrði Geysi Green Energy, verið ráðinn forstjóri hins nýja félags. Nokkrir af fyrrum starfsmönnum Geysis hafa og verið ráðnir til Magma Energy Iceland ehf. „Með stofnun dótturfyrirtækis á Íslandi vill Magma undirstrika mikilvægi Íslands í uppbyggingu félagsins á alþjóðavísu og fylgja eftir fjárfestingum sínum hér á landi, til að styðja við starfsemi og uppbyggingu HS Orku" segir Ásgeir Margeirsson. „Við höfum leigt húsnæði að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ og erum að koma okkur þar fyrir. Auk þess að vinna að verkefnum hér á landi munu starfsmenn Magma á Íslandi koma að jarðhitaverkefnum Magma víða um heim. Hér skapast því nýtt tækifæri fyrir íslenska jarðhitasérfræðinga til þátttöku í verkefnum erlendis." Vetrarólympíuleikarnir 2010 verða haldnir í Vancouver í Kanada 12.-28. febrúar nk. en Magma Energy er með höfuðstöðvar í þeirri borg. Er Magma einn styrktaraðila Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands vegna leikanna og mun fyrirtækið greiða götu íslenska ólympíuliðsins þar vestra meðan á leikunum stendur. Magma Energy er kanadískt jarðhitafyrirtæki sem vinnur að þróun og uppbyggingu jarðvarmavirkjana víða um heim, m.a. á Íslandi, í Bandaríkjunum, Chile og Perú. Magma er almenningshlutafélag, skráð á hlutabréfamarkað í Toronto í Kanada. Stofnandi Magma og forstjóri er Ross J. Beaty jarðfræðingur. Hann er varaformaður stjórnar HS Orku.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira