Seðlabankinn lækkar vexti Óli Kristján Ármannsson skrifar 28. janúar 2010 06:00 vaxtaákvörðun kynnt Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfæðingur Seðlabanka Íslands, kynntu vaxtaákvarðanir bankans og nýja efnahagsspá í gær. Fréttablaðið/Pjetur
Frekara afnám gjaldeyrishafta bíður meðan enn er óvissa um afdrif Icesave-mála og framgang efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). „Meðan núverandi staða er uppi gerist ekki neitt,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri í gær eftir kynningu á vaxtaákvörðun bankans og uppfærðri efnahagsspá. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að lækka vexti bankans um 0,5 prósentustig. „Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 8,0 prósent. Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum verða 9,25 prósent. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga verða 9,5 prósent og daglánavextir 11,0 prósent,“ að því er fram kemur í tilkynningu. Már Guðmundsson seðlabankastjóri fór á fundinum yfir áhrif þess að enn hafi ekki tekist að leysa deiluna um bætur til erlendra innstæðueigenda Icesave, en í rökstuðningi peningastefnunefndar bankans er bent á að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs hafi þegar verið lækkuð í áhættuflokk hjá einu matsfyrirtækjanna vegna þessa og þá gæti orðið töf á efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS. „Og orðið til þess að lánveitingar frá sjóðnum og erlendum ríkisstjórnum, sem eru forsenda fyrir árangursríkri lántöku á alþjóðlegum lánamörkuðum, tefjast einnig.“ Haldi gjaldeyrishöft sagði Már að skammtímaáhrif þessa á krónuna ættu að vera lítil. „Hins vegar væri áhættusamt að taka fleiri skref til afnáms gjaldeyrishaftanna á meðan þessi óvissa varir.“ Óskaniðurstaða Seðlabankans hvað Icesave-deiluna varðar sagði Már hins vegar vera þá að málið leystist í sátt við umheiminn á allra næstu vikum. „Hvort sem það verður í þjóðaratkvæðagreiðslu eða fyrr.“ Hann segir óvissu um afdrif Icesave-deilunnar og endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS hafi sett strik í reikning vaxtaákvörðunar nú og geti gert það enn frekar dragist málið. „Við teljum okkur þurfa að fara eitthvað varlegar en ella. Að vísu hjálpa höftin, en það sem hefur gerst er að þegar skuldatryggingarálag fer upp og lánshæfismat niður – okkar ytra mat versnar – þá skapar það hvata fyrir þá sem eru hér með bundið fé til að fara út og erlendir aðilar eru óviljugir til að koma hér inn. Styrking krónunnar verður minni en ella.“ Síðan bendir hann á að á árunum 2011 og 2012 þurfi að endurfjármagna hér lán. Már sagði hins vegar ljóst að ef lánshæfismat Íslands væri það sama og fyrir áramót og skuldatryggingarálag hefði ekki hækkað og ekki væri óvissa um efnahagsáætlunina „þá er alveg ljóst að við hefðum lækkað vextina meira núna, það er alveg ljóst“.
Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira