Marel furðar sig á málsmeðferð FME 4. maí 2010 11:20 „
Marel furðar sig á málsmeðferð FME, ekki síst í ljósi þess að um matsatriði er að ræða. Óskaði félagið m.a. eftir fundum með FME til að fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri en þeim beiðnum var ávallt hafnað."Þetta segir m.a. í yfirlýsingu frá Marel vegna ákvörðunnar Fjármálaeftirlitsins um að sekta Marel um 5 milljónir kr. vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Greint var frá málinu á visir.is í morgun.Yfirlýsingin í heild hljóðar svo: „Í ljósi ákvörðunar stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) um að gera Marel Food Systems hf. (Marel) sekt vegna meintra brota félagsins á ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, skal tekið fram að málið varðar fyrst og fremst formsatriði og mismunandi túlkun aðila á ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti er lúta að meðferð innherjaupplýsinga.Niðurstaða FME er að tilkynningaskyldar innherjaupplýsingar hafi myndast hjá Marel, strax að afloknum stjórnarfundi félagsins, miðvikudaginn 23. september 2009, þegar félagið ákvað að ganga til viðræðna við Columbia Wanger um hugsanleg kaup sjóða á þeirra vegum á hlutabréfum í Marel.Það er afstaða Marel að ekki hafi stofnast tilkynningarskylda fyrr en föstudaginn 25. september 2009 þegar líkur á að til viðskipta myndi stofnast voru orðnar meiri en minni, fjárhæð viðskipta ákveðin svo og hverjir væru hinir raunverulegu kaupendur hlutabréfanna. Marel birti upplýsingarnar eins fljótt og auðið var í kjölfar þess, í samræmi við ákvæði laga. Tekið skal fram að ákvörðunin um tímasetningu birtingar var tekin að vandlega yfirlögðu ráði og í nánu samráði við ráðgjafa félagsins, sem telja að tímasetning birtingar Marels sé í samræmi við lög og venju á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.Marel furðar sig á málsmeðferð FME, ekki síst í ljósi þess að um matsatriði er að ræða. Óskaði félagið m.a. eftir fundum með FME til að fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri en þeim beiðnum var ávallt hafnað. Marel hefur gert FME skriflega grein fyrir afstöðu sinni, sem og því mati sínu að umrædd ákvörðun sé háð verulegum annmörkum er kunni að valda ógildingu hennar. Stjórn FME hefur engu að síður hafnað að afturkalla ákvörðun sína.Það er einlægur ásetningur Marel að fylgja í hvívetna leikreglum á fjármálamarkaði og ábendingum eftirlitsaðila. Í ljósi þess kallar félagið eftir því að slíkar leikreglur verði skýrari og samskipti FME við eftirlitsskylda aðila bætt enn frekar. Þrátt fyrir þann ágreining sem uppi er í þessu máli um túlkun á viðkomandi ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti mun Marel ekki aðhafast frekar hvað þetta varðar."
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira