Hressileg lækkun á skuldatryggingaálagi Íslands 4. maí 2010 10:59
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur lækkað hressilega undanfarna viku. Í morgun stóð álagið til 5 ára í 375 punktum (3,75%) en fyrir viku síðan stóð það í 425 punktum (4,25%). Álagið nú er með lægra móti miðað við þróun þessa árs, en það sem af er ári hefur álagið verið að meðaltali 487 punktar. Hámarki náði álagið í byrjun febrúar þegar það toppaði í 675 punktum.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þrátt fyrir að telja megi saman ýmsa þætti sem gætu rökstutt lægra álag á ríkissjóð nú, svo sem farsæla niðurstöðu annarrar endurskoðunar AGS og breytingar á horfum lánshæfismats hjá Moody´s til betri vegar, er þó líklegra að lækkunina nú megi rekja til almennrar stemmningar á markaði með skuldatryggingar.Þannig hefur skuldatryggingaálag annarra ríkja einnig lækkað undanfarna viku. Eru Grikkland, Spánn og Portúgal þar meðtalin. Lækkun áhættuálags ríkisjóðs Íslands virðist því ekki tengjast innlendum þáttum beint, þó að af nógu sé að taka í þeim efnum, heldur virðist vera um almenna hreyfingu á mörkuðum að ræða. Þetta bendir til þess að áhættufælni sé nú á undanhaldi, að minnsta kosti í bili.Mörgum kann að skjóta skökku við að svo sé á sama tíma og hriktir rækilega í stoðum myntbandalags Evrópu, og Spánn og Portúgal virðast vera næst á matseðli alheimskreppunnar. Hinsvegar er ljóst að óvissa varðandi örlög þessara ríkja hefur farið minnkandi og Grikkland hefur nú fengið björgunarhring frá AGS og ESB. Þrátt fyrir að björgunarpakkinn hafi sætt nokkurri gagnrýni virðist sýnt að Grikkland mun nú komast yfir stóra gjalddaga sem framundan eru í maí og júní og hefur því verið bjargað fyrir horn.
Mest lesið „Þær eru bara of dýrar“ Neytendur Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Viðskipti innlent Búast við tveggja milljarða tapi Viðskipti innlent Samruninn muni taka langan tíma Viðskipti innlent Orri til liðs við Íslandsbanka Viðskipti innlent Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Viðskipti innlent Skamma og banna Play að blekkja neytendur Neytendur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Viðskipti innlent Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur Fleiri fréttir Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent