Eigendur Saxbygg lánuðu sjálfum sér 5,3 milljarða 4. febrúar 2010 00:01
Skiptastjóri þrotabús fjárfestingarfélagsins Saxbygg hefur stefnt fyrri eigendum fyrirtækisins vegna sölu á erlendum fasteignaverkefnum til félaga þeim tengdum, lánveitingum Saxbygg til eigenda og ráðstöfunar eigna til fyrirtækja þeim tengdum. Lánin sem eigendur Saxbygg veittu sjálfum sér samanstanda af norskum krónum, evrum og pundum og hljóða upp á 5,3 milljarða króna á núvirði. Skiptastjóri vill að viðskiptunum verði rift. Einar Gautur Steingrímsson skiptastjóri segir að eigendur Saxbygg, Nóatúnsfjölskyldan svokallaða og eigendur Byggingafyrirtækisins Gunnars og Gylfa, hafi stofnað fjögur einkahlutafélög. Þau heita Cromwell Holdings, sem var móðurfélag þriggja annarra: Stenia, Aldersgate Invest og Brandenburg Invest. Inni í hverju hinna þriggja dótturfélaga voru erlend fasteignaverkefni; í Stenia norsk fasteignaverkefni, Aldersgate hélt utan um fasteignaverkefni í London í Bretlandi og í Brandenburg var verkefni í Berlín í Þýskalandi. Svo virðist sem Saxbygg hafi veitt félögunum þremur kúlulán til kaupa á fasteignunum. Eignirnar eru ekki lengur í félögunum og telur skiptastjóri að þær hafi verið seldar til fyrirtækja ytra árið 2008. Engir fjármunir virðast hafa skilað sér í bækur félaganna við sölu þeirra. Skiptastjóri gerir bæði athugasemdir við að eignirnar voru seldar með kúlulánum, að þeim hafi verið ráðstafað áfram og því ekki innan seilingar. „Þetta virðist hafa yfirbragð venjulegra viðskipta. Ekkert var greitt við söluna heldur átti að greiða það síðar. Það sættum við okkur ekki við," segir skiptastjóri. Björn Ingi Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Saxbygg, er framkvæmdastjóri allra fyrirtækjanna sem um ræðir. „Ég hef ekkert um þetta að segja, ekki nokkurn skapaðan hlut," segir hann í samtali við Fréttablaðið. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. - jab
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira