SA tekur undir með Samkeppniseftirlitinu 26. janúar 2010 10:23
Samtök atvinnulífsins (SA) taka undir þá skoðun Samkeppniseftirlitsins að einungis eigi að koma til aðstoðar fyrirtækjum sem eigi sér eðlilegar rekstrarlegar forsendur og forðast beri að endurreisa eða halda gangandi óhagkvæmum fyrirtækjum.Fjallað er um málið á vefsíðu SA en þar segir að Samtök atvinnulífisins hafi sent Samkeppniseftirlitinu umsögn um umræðuskjal stofnunarinnar sem fjallar um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum.SA telja jákvætt að Samkeppniseftirlitið hafi sett fram góða greiningu á flóknu úrlausnarefni en benda á að svör skorti við því hvernig leysa eigi úr raunverulegum málum. Þá telja SA óviðeigandi að stofnunin óski eftir auknum valdheimildum í umræddu umræðuskjali til að skipta upp fyrirtækjum en fyrir því eru engar efnislegar forsendur.Í umsögn SA segir m.a. að samtökin taki undir þá skoðun Samkeppniseftirlitsins að einungis eigi að koma til aðstoðar fyrirtækjum sem eigi sér eðlilegar rekstrarlegar forsendur og forðast beri að endurreisa eða halda gangandi óhagkvæmum fyrirtækjum. Jafnframt sé nauðsynlegt að bregðast hratt við skuldavanda rekstrarhæfra fyrirtækja og það geti verið atvinnulífi og almenningi til hagsbóta að bankar afskrifi skuldir eða dragi með öðrum hætti úr skuldabyrði rekstrarhæfra fyrirtækja enda sé slík ákvörðun almennt ekki gagnrýnisverð út frá ákvæðum samkeppnislaga svo framarlega sem hún er byggð á málefnalegum og viðskiptalegum forsendum.Þá taka SA undir það sjónarmið að bankar verði að gera skýra arðsemiskröfu til endurskipulagðra fyrirtækja og nauðsynlegt sé að bankar fylgi skýrum verklagsreglum sem byggi á faglegum vinnubrögðum og jafnræði. Þá beri bönkum að selja endurskipulögð fyrirtæki sem þeir eignast hlut í svo fljótt sem auðið er í gagnsæju ferli og nýta eftir því sem mögulegt er skráningu í kauphöll í því sambandi.Samtök atvinnulífsins gera hins vegar eftirfarandi athugasemd:„Samtök atvinnulífsins eru sammála því að samkeppnislögin eigi fyrst og fremst að vernda samkeppni en ekki keppinauta. Það er hins vegar alvarlegur misskilningur sem fram kemur í umræðuskjalinu að þar með beri að taka kvörtunum og kröfum fyrirtækja um jafnræði eða eðlileg samkeppnisskilyrði „með fyrirvara".Samkeppnisyfirvöld eiga þvert á móti að hlýða með athygli á umkvartanir fyrirtækja um brot á samkeppnislögum og leitast eftir föngum við að bæta þar úr, þegar slíkar umkvartanir eru á rökum reistar. Til þess að auka tiltrú á framkvæmd samkeppnislaga er raunar mikilvægt að samkeppnisyfirvöld upplýsi án óeðlilegrar tafar þá sem til þeirra beina kvörtunum hvort eða hvernig þau hyggist bregðast við þeim."Þá eru SA algjörlega ósammála þeim sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins að heimildir skorti til handa Samkeppniseftirlitinu til þess að skipta upp fyrirtækjum.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira